Færsluflokkur: Spaugilegt

Snáðinn minn!

Ég á fimm ára snáða, sem er stundum eins og gömul rispuð grammafóns plata. Einn daginn langaði honum í kartöfluflögur og lagði mig hreinlega í einelti eftir að ég hafði sagt  " NEI "  engar kartöfluflögur í dag. Hann elti mig um allt hús og suðaði stöðugt um kartöfluflögur . Ég varð bara harðari á nei-inu.  Síminn hringði og hann stillti sé samstundis upp við hliðina á mér  og hvíslaði pent "mamma má ég fá flögur?"  Ég var ekki uppteknari  í símanum en svo, að ég hélt mig við nei-ið. Snáðinn fylgdist vel með hvenær ég var búinn í símanum. Elti mig inn í stofu og hélt uppteknum hætti ,eftir að ég settist í sófann. Suðaði um sínar kartöfluflögur! Nú var mér nóg boðið!! Sagði honum að setjast og hlusta á hvað ég  væri að fara að segja.  Veistu hvað-nú ætla ég að segja nei við öllu sem þú biður um. Láta þig skilja hvað, nei þýðir. Nei, þýðir að þú færð ekki það sem þú biður um !!! Snáðinn horfði á mig undrandi og með smá sársauka í augnaráðinu! þagði um stund. Svo leit hann á mig og sagði hátt og snjallt "Mamma , veistu hvað,hér í þessum bæ sem við búum í - þýðir NEI- JÀ     

karl eignast barn!

Mikid er nú audvelt ad draga okkur á asnaeyrunum! Í fyrirsögninum bladanna er fullyrt ad karlmadur nokkur hafi eignast barn. Birt er mynd af manni nokkrum sem greinilega er ekki madur einsamall. Ef betur er ad gád er hér um konu ad ræda sem hefur einhverntímann á lífsleidinni skipti um kyn, sem er hid besta mál. En haldið eftir því sem gerir okkur konur ad konum -nefninlega leginu  og öllu sem því tilheyrir. Burtu med brjóstin og upp med skeggid!

Sé ekki enn hvernig hægt er ad heimfæra þetta upp á ad fyrsti karlmadurinn hafi fætt barn.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband