Danir eru besta fólk ...en

Til eru Danir eins og þeir sem verið er ad lýsa hér í greininni. Uppfullir af ergelsi -peningagræðgi og yfirgangi og öfundsýki!  Svoleiðis vitleysingar  finnast meðal allra þjóða -en Danir eru eitthvað óheppnir þessa dagana -ekki satt?  Allir þeirra verstu skúrkar hitta okkur Íslendingana til sjávar og sveita. Láta okkur heyra það óþvegið og eru ekkert ad snúa kurteisu hliðinni að okkur. Enda engin þörf á því! Búið að gefa út að við erum hryðjuverkamenn,skítblönk og stórhættuleg!  Hver vill hjálpa svoleyðis fólki nema gegn staðgreiðslu, á hafi úti?  Ég veit að til er fólk sem lætur okkur finna hve ótrúlega vitlaus við erum sem þjóð í heild sinni og dæmir alla út frá blaðafréttum um Íslensku þjóðina. Við erum komin í hlutverk þess sem allir meiga sparka í og koma illa fram við. Danir njóta hlutverksins út í ystu æsar. Enda mesta hópsál sem ég hef kynnst.  Annars er merkilegt ef fólk í lífsháska fær ekki hjálp !  Reyndar alveg óskiljanlegt og ófyrirgefanlegt vona ad svona atvik sé algert einsdæmi. Ég ætla að halda áfram að vera stoltur Íslendingur í Danmörku ...allavega enn um sinn! En vissulega hafa atburðir síðustu mánada haft áhrif á framkomu fólks í okkar garð og vissulega er ekkert gamanmál að vera Íslendingur í Dönskum banka í dag! En ég hélt í barnaskap mínum að fólk í háska væri ekki látið gjalda fyrir þjóðerni sitt!    
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Madur var bara midur sín ad heyra tessa frétt.getur tetta verid satt hugsadi madur....Já tví midur.

Kærleikskvedjur til tín frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 14.11.2008 kl. 21:32

2 identicon

Mikið er leiðinlegt þegar það verður svona múgsefjun og einstaklingurinn er látin gjalda fyrir þjóðernið.  Kveðja til þín

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 02:24

3 Smámynd: Jac Norðquist

Hjartanlega sammála þér Birna, það er með ólíkindum hvað Daninn getur verið skítlegur í eðli sínu á svona tímum.... auðvitað ekki allir en merkilega mikill hluti funnst manni.... maður sér amk engann segja... hey, slakið á og sýnið Íslendingum lágmarkskurteysi.... ég hef séð ráðist á minnihlutahópa á Íslandi, sama hvort það eru minnihlutahópar erlendis (td Palestínu Arabar eða aðrir) og það spretta upp heilu samtökin til varnar þeim.... sbr Frelsum Palestínu eða álíka.... Það vantar alveg eitthvað sambærilegt í umræðuna hér.... ég hef hvergi séð neinn Dana koma Íslensku þjóðinni til varnar...hvergi !!! Og ég er nú frekar fréttasækinn maður! Ef þið sjáið einhverja þá grein eða frétt þar sem að Danir verja íslendinga.... endilega vísið mér á hana !

Eins og ég segi.... þá er þjóðarsálin hér alveg stórmerkileg... ég er einna helst á því að Daninn sé svona ofboðslega þjakaður af Minnimáttarkennd ! Það þarf ekki að blaða lengi í dagblöðunum til þess að sjá þetta mynstur....

Jæja, ég ætla að vinda aðeins ofan af mér og fá mér kaffibolla og jafna mig hahahahahahaha

Bestu kveðjur

Jac

Jac Norðquist, 15.11.2008 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband