Biddu nú hægur !

Hafa svo Íslendingar fengið gull á Ólympíuleikum  .......og ég ekkert heyrt um þetta fyrr en núna!Leynast svona "gullmolar" kannski í felum í öðrum löndum?  Annarar eða þriðju kynslóðar Íslendingar- hverjum er ekki sama. Íslenskur uppruni týnist aldrei !! Einu sinni Íslendingur - alltaf Íslendingur.  Áfram Ísland!!  


mbl.is Kvikmynd um íslenskt ólympíugull
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Ágúst Ásgeirsson

Reyndar telur þetta gull ekki því þetta lið keppti fyrir Kanada held ég alveg örugglega...

Gunnar Ágúst Ásgeirsson, 27.8.2008 kl. 08:40

2 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

iss ég lít alveg fram hjá svoleyðis smáatriðum-  þetta gull telur alveg hjá mér - ætterni telur meira en þjóðerni

Birna Guðmundsdóttir, 27.8.2008 kl. 08:45

3 Smámynd: Gulli litli

Kúl!

Gulli litli, 27.8.2008 kl. 09:40

4 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Íslendingar hafa náð nokkrum gullum á Ólympíuleikum fatlaðra. Telur það ekkert?

Þ

Þórdís Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 11:45

5 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

jú, auðvitað telur það- ekkert minna en silfur handboltamannanna!!! Svona er stundum, maður gleymir þegar einstaklingar skara fram úr en tryllist svo þegar hópar sigra í íþróttum.  Gott að maður er minntur á að afreksfólkið leynist víða.  Fengu þau ekki riddarakrossinn fyrir frábæra frammistöðu?

Varla er gert upp á milli þegnanna í voru landi!  Landi hinna alþýðlegu og snobblausu.   

Birna Guðmundsdóttir, 27.8.2008 kl. 12:04

6 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Það hefur verið svo oft skrifað um Fálkana í íslenska fjölmiðla og tímarit, allt fram á síðustu ár, að ég er pínulítið hissa ef fólk er ekki almennt vitað um afrek þeirra. 

Það er hins vegar rétt, sem Gunnar Ágúst bendir á, að þeir kepptu í nafni Kanada og því hefur afrekinu kannski ekki verið haldið á lofti í hvert sinn sem Íslendingar brillera á alþjóðavettvangi.

Svo verður jú maður að virða það þótt fólk sem lítinn eða engan áhuga hefur á íþróttum viti þetta ekki. 

En gott að Birna veit allt um þetta nú.

Ágúst Ásgeirsson, 27.8.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband