Maður fær hroll !

Hve áræðanlegar eru svona fréttir ? Á maður á hættu í framtíðinni að drepast eftir vatnsdrykkju úr heimiliskrananum?  Hvernig hugsunargangur er hjá fólki? Var að lesa í BT um dómara í Saudi -Arabíu sem vill taka sem flesta dani af lífi vegna skemmtiþáttar á einni sjónvarpsrásinni. Stórhættulegur þáttur sem kyndir undir spillingu !!  Já, þátturinn er saklaus dansþáttur sem danska þjóðin fylgist vel með á hverjum föstudegi.  Aldrei datt manni í hug að dans væri svona glæpsamlegur -en maður lærir alltaf eitthvað nýtt. Fyrst teiknimyndir ,nú dans ! Ég spyr, er engin endir á hve fólk er vitlaust?

Er það staðreynd ad úti í heimi sitji menn og spjalli saman yfir kaffibolla, um hvernig best sé að tortíma heilli þjóð (jafnvel þjóðum )á sem auðveldastan hátt ? Eitra drykkjarvatn!!  Já , svei! Kannski ættu þeir að gera generalprufu á Íslandi - þar drekka allir vatn, svo ekki ætti það að vera erfitt. Einnig stór plús hve margir búa á sama svæðinu. Íslendingar eiga þetta alveg pottþétt skilið ,eftir alla vondu meðferðina á flóttafólkinu á Íslandi! Kannski ekki allir, en skítt með það! Á von á að bráðum fari margar íslenskar konur að ganga um með slæður til að hylja sig á götum úti. þær eru ekki mönnum sinnandi af skömm ,yfir meðferðinni á flóttafólkinu sem vonda löggan var eitthvað að æfa sig á!! Ef ekkert er óhreint í pokahorninu hjá flóttafólkinu -er bara allt í lagi að löggan kíki í heimsókn- ef ekki ,er enn  betra að hún kíki við hjá þeim. Einkennilegt  hve miklir peningar og mörg vegabréf  á mann, fundust í heimsókninni. Á öllum málum eru tvær hliðar og í öllum löndum eru lög sem þarf að fara eftir. Hjá okkur er eitt vegabréf á mann og við gerum þær kröfur einnig til gesta okkar. Hér í DK er ég útlendingur - með mitt eina vegabréf. Varla væri mér tekið fagnandi af Dönum ef ég væri með fjölda vegabréfa. Íslensk í dag -frönsk á morgun -japönsk hinn daginn - lifandi á Ríkinu og með fulla vasa af peningum? Svo góðir eru frændir vorir Danir ekki. En eitt veit ég að  Danir eiga ekki skilið svona lákúrulega meðferð  eins og þeir fá, eftir að hafa opnað land sitt fyrir múslimum og greitt götu þeirra. Svona fréttir eru bara til að kynda undir óöryggi og tortryggni. En ef satt reynist, er heimurinn vissulega á villugötum og sennilega best að kasta af sér hempu trúarinnar og fara að trúa á stokka og steina. Engin hætta er, að hægt sé að særa neina mannlega veru þó teiknuð sé grínmynd af steinum! Svona án gríns ,er vitlausa genið alveg að gera út af við  fólk sem safnast saman undir merkjum Islam? Ekki er neinn múslimi svo vitlaus að halda að ekki mundi stór hópur múslima í DK drepast í svona eiturbyrli ef af verður. En einhvernveginn finnst manni mannslífið ekki vera metið upp á marga fiska í þessum löndum.  

Megi kærleikur fylla huga ykkar í dag sem aðra daga!              


mbl.is Rætt um að eitra vatn í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Birna, þú værir í raun ekkert hissa á þessu ef þú þekktir kjarnann í trúarkenningum múslíma og hvaða áhrif þær hafa á blessaða fólkið. Ég bendi á mjög fróðlega lesningu á http://www.prophetofdoom.net/

Brynjar (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband