Ljótt að heyra um bréfberann í þýskalandi. Kannski var hann bara að spara skóna sína! Hver veit nema bréfberinn minn í DK lúri á öllum bréfunum sem ég hef tapað á leiðinni Danmörk -Ísland og eins Ísland -Danmörk. Loksins hef ég, kannski, fundið sökudólginn. Lúinn bréfberi er ekki upp á marga fiska. Annars móttek ég póst til bæði lifandi og dauðra. Já, heimilisdraugurinn vafrar um á nóttunni og bíður eftir bréfberanum. Hann fær all mörg bréf, sem ég er svo óalmennileg að senda til baka. En fæ svo jafn óðum í hausinn aftur, enda heimilisdraugurinn skráður hér til húsa. Finnst alltaf hálf ónotalegt að fá bréf hingað stíluð á löngu dauðann mann. Mann ,sem ég hef engin tengsl við en finnst ég heyra í á nóttunni -rótandi í póstinum .
Pósturinn sem aldrei skilaði sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er náttúrlega ekkert í lagi með þig og allan draugana sem hanga í rassinum á þér hvar í heiminum sem þú býrð. Var ekki nóg að drekka fyrir einn íslenskan þó þú takir nú ekki við pósti frá einum dönskum. Bjóddu honum á fyllerí hið snarasta!! Og á ekkert að fara að drífa sig á facebook. Allar frænkurnar þar og báðar dætur þín og sú elsta mín. Góð leið til að halda fjölskyldutengslin á netinu, nema þú takir upp á því að henda internetinu í ruslið eins og ein fróm kona hér á landi gerði. She
Silla sys (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 15:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.