Færsluflokkur: Dægurmál

flottur vinningur!

Einn sá notadrýgsti vinningur sem  ég hef heyrt um! Allir þurfa að punga út peningum til að komast í holuna sína í kirkjugarðinum- ekki satt?
mbl.is Vann ókeypis jarðarför í happdrætti - vinningurinn er ósóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt!

Nánast göldrum líkast ad svona geti farið!
mbl.is 13 létust í vináttuleik í knattspyrnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta er Kaupmannahöfn í dag!

Fallega borgin mín, er að breytast í glæpabæli! Hvað veldur þessari breytingu? Spurning sem maður spyr sig oft að. Venjulegt fólk er barið á götum úti ,án sýnilegrar ástæðu annarar en að vera á vitlausum stað á vitlausum tíma. Glæpagengin skjóta hverjir á aðra . Glæpagengin eru komin í hörku valdabaráttu - var þetta kannski liður í henni?  Sorglegt hve Kaupmannahöfn er oft vettvangur glæpa-eins og borgin er nú annars falleg og bjóðandi heim að sækja .       
mbl.is Skotárás í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skrítnar áherslur

Hvað kemur bókstafstrú -barneignum við? Kær kveðja frá einni sem er ekki bókstafstrúar. Sem kemur heldur ekki málinu viðWink    
mbl.is Nítjánda barnið kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

allt er nú hægt !

Stela auðkennum og vera auðkennisþjófnaðar -fíkill!  Sennilega eiga margar konur í henni Ameríku sér klappstýrudrauma- furðulegur draumur og alveg svakalega Amerískur.     
mbl.is Stal nafni dóttur sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður fær hroll !

Hve áræðanlegar eru svona fréttir ? Á maður á hættu í framtíðinni að drepast eftir vatnsdrykkju úr heimiliskrananum?  Hvernig hugsunargangur er hjá fólki? Var að lesa í BT um dómara í Saudi -Arabíu sem vill taka sem flesta dani af lífi vegna skemmtiþáttar á einni sjónvarpsrásinni. Stórhættulegur þáttur sem kyndir undir spillingu !!  Já, þátturinn er saklaus dansþáttur sem danska þjóðin fylgist vel með á hverjum föstudegi.  Aldrei datt manni í hug að dans væri svona glæpsamlegur -en maður lærir alltaf eitthvað nýtt. Fyrst teiknimyndir ,nú dans ! Ég spyr, er engin endir á hve fólk er vitlaust?

Er það staðreynd ad úti í heimi sitji menn og spjalli saman yfir kaffibolla, um hvernig best sé að tortíma heilli þjóð (jafnvel þjóðum )á sem auðveldastan hátt ? Eitra drykkjarvatn!!  Já , svei! Kannski ættu þeir að gera generalprufu á Íslandi - þar drekka allir vatn, svo ekki ætti það að vera erfitt. Einnig stór plús hve margir búa á sama svæðinu. Íslendingar eiga þetta alveg pottþétt skilið ,eftir alla vondu meðferðina á flóttafólkinu á Íslandi! Kannski ekki allir, en skítt með það! Á von á að bráðum fari margar íslenskar konur að ganga um með slæður til að hylja sig á götum úti. þær eru ekki mönnum sinnandi af skömm ,yfir meðferðinni á flóttafólkinu sem vonda löggan var eitthvað að æfa sig á!! Ef ekkert er óhreint í pokahorninu hjá flóttafólkinu -er bara allt í lagi að löggan kíki í heimsókn- ef ekki ,er enn  betra að hún kíki við hjá þeim. Einkennilegt  hve miklir peningar og mörg vegabréf  á mann, fundust í heimsókninni. Á öllum málum eru tvær hliðar og í öllum löndum eru lög sem þarf að fara eftir. Hjá okkur er eitt vegabréf á mann og við gerum þær kröfur einnig til gesta okkar. Hér í DK er ég útlendingur - með mitt eina vegabréf. Varla væri mér tekið fagnandi af Dönum ef ég væri með fjölda vegabréfa. Íslensk í dag -frönsk á morgun -japönsk hinn daginn - lifandi á Ríkinu og með fulla vasa af peningum? Svo góðir eru frændir vorir Danir ekki. En eitt veit ég að  Danir eiga ekki skilið svona lákúrulega meðferð  eins og þeir fá, eftir að hafa opnað land sitt fyrir múslimum og greitt götu þeirra. Svona fréttir eru bara til að kynda undir óöryggi og tortryggni. En ef satt reynist, er heimurinn vissulega á villugötum og sennilega best að kasta af sér hempu trúarinnar og fara að trúa á stokka og steina. Engin hætta er, að hægt sé að særa neina mannlega veru þó teiknuð sé grínmynd af steinum! Svona án gríns ,er vitlausa genið alveg að gera út af við  fólk sem safnast saman undir merkjum Islam? Ekki er neinn múslimi svo vitlaus að halda að ekki mundi stór hópur múslima í DK drepast í svona eiturbyrli ef af verður. En einhvernveginn finnst manni mannslífið ekki vera metið upp á marga fiska í þessum löndum.  

Megi kærleikur fylla huga ykkar í dag sem aðra daga!              


mbl.is Rætt um að eitra vatn í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danir spara allt.

Danir spara í mat - vann með einni sem fékk áfall þegar maðurinn hennar keypti jólasteikina hjá slagtaranum en ekki í Nettó.  Hún ákvað fyrirfram að steikin væri óæt - hún gæti einfaldlega ekki rennt niður svona dýrri steik á jólunum og notið hennar. Steikin dýra var virkilega vond og ekkert skildi hún í manninum og börnunum sem kjömmsuðu á steikinni og lyngdu aftur augunum og nutu hennar. Hún ætlar sko sjálf að versla inn kjötið í Nettó fyrir næstu jól! Verðmunur á bitanum dýra og ódýra var um 1000 íslenskar krónur og heildarverd steikurinnar var rúm 3000 ísl.krónur. Kannski var steikin dýra ljúf á bragðið -en konan svo föst í ódýra munstrinu og sparnaðinum að hún fékk óbragð í munninn vegna verðsins.  

Sparnaður er jú hin besta dyggð- en danir ganga stundum full langt í að spara. Sitja t.d. margir í óupphituðum húsum með kveikt á einu kerti og svo auðvitað sjónvarpinu. Finnst það vera alveg nóg lýsing og upphitun. Hræðilegt hve margir eldri danir eru í illa upphituðum húsum og skammta sjálfum sér lítinn mat. þad er ekki alsstaðar hygge og jólahlaðborð í DK. En það er einmitt sú mynd sem við höfum af frændum vorum dönum.  

 


mbl.is Danir spara við sig í mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

maður deilir ekki við múslíma

Enda engin ástæða til - allt í lagi að svelta börn og umskera í nafni trúarinnar.  Danir eru hreinlega hræddir að segja nei við þennan trúarflokk- kannski kemur sá dagur líka á Íslandi.   
mbl.is Deilt um föstu barna í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg nýjung!

Ekkert smá mikil list að láta nakta stjórnmálamennsaman haldast í typpi! Vantar alveg svona í DK! Eins og þeir eru nú framalega í allri nekt og manna frjálsastir í þeim málum.
mbl.is Stjórnmálamenn án klæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun heimsins eru vanþakklæti!

Ekkert smá mál að vera landsliðsþjálfari - bara hugaðir menn sem velja það starf. Óli er einn af þeim!

Svo er hann svo fjölhæfur drengurinn, ekkert að því að kunna að handleika hamar. Áfram Óli og megi þér takast að reka strákana framar á völlinn í næsta leikSmile     


mbl.is Ólafur: Þorðum ekki að fara nógu framarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband